Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1979/Matsstöðin við Skildingaveg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 16:02 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 16:02 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>'''Matsstöðin við Skildingaveg'''</center></big></big><br> Í fyrra urðu hér þáttaskil í sambandi við mat á fiski, þegar hin nýja matsstöð tók til st...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Matsstöðin við Skildingaveg


Í fyrra urðu hér þáttaskil í sambandi við mat á fiski, þegar hin nýja matsstöð tók til starfa. Það var í apríl á síðasta ári, að byrjað var að meta fisk í stöðinni, þannig, að hún hefur nú starfað í rúmt ár. Það mun mál allra, sem þarna eiga hlut að máli, að allar aðstæður hafi gjörbreyst til hins betra við tilkomu stöðvarinnar. Sérstaklega er öll aðstaða matsmanna önnur, og ekki saman að jafna við það þegar þeir voru áður rambandi milli stöðvanna þar sem matið fór fram við misjafnar aðstæður.

Slíkar matsstöðvar eru víða um land, en stöðin hér í Eyjum þykir bera af fyrir góðan aðbúnað og hreinlæti. Sá galli er þó á stöðinni að sögn ráðamanna, að gamla Emmuhúsið er heldur lítið fyrir starfsemina.
Forstöðumaður stöðvarinnar er Bjarnhéðinn Elíasson og einnig er Ingi Steinn Ólafsson fastur starfsmaður stöðvarinnar. Á mesta annatíma í vetur þurfti svo að bæta við starfsliði, þegar ekki hafðist undan. Allur manneldisfiskur er metinn í stöðinni og prufurnar af þorski og ufsa saltaðar þar. Mjög er mismunandi, hve mikið magn er tekið hverju sinni í prufur, komst upp í það í vetur, að tekið var hálft tonn í prufur úr fimmtíu tonna afla. Ýsan er flökuð og síðan metin en þorskur og ufsi fer í flatningu, áður en metið er. Í vetur voru söltuð í stöðinni milli 40 og 50 tonn, þannig að ekki hafa þeir félagar setið auðum höndum á vertíðinni.
Stöðin er í eigu Samfrosts, en er rekin sem sjálfstætt fyrirtæki, hvað fiskverkun snertir.
Hönnun á „skrifstofu" stöðvarinnar annaðist Magnús Bjarnason í samráði við Bjarnhéðin forstöðumann. Skipaviðgerðir sáu um smíði á „skrifstofunni" og innréttingum og er það mjög þokkalega unnið. Er öll aðstaða við skriffinnsku mjög hentug ekki síður en aðstaðan við matið sjálft og verkunina.

Við óskum þeim Matsstöðvarmönnum til hamingju með bætta aðstöðu og von um margan kaffisopann í framtíðinni.