Ólafur Vilhjálmsson (Múla)
Ólafur Vilhjálmsson, Múla, fæddist að Botnum í Meðallandi 12. september 1900 og lést 24. febrúar 1972.
Ólafur byrjaði sem formaður á Esther árið 1924.
Þann 16. desember 1924 lenti Ólafur í sjávarháska þegar 9 menn fóru frá Eiðinu í Vestmannaeyjum út í Gullfoss á opnum báti. Er þeir höfðu ýtt frá sökk báturinn og 8 drukknuðu en Ólafi var bjargað af Soffí sem lá við Gullfoss. Formaður á Soffí var Andrés Einarsson.
Árið 1926 tekur Ólafur við formennsku á Garðari III og var með hann tvær vertíðir. Eftir að Ólafur hætti formennsku á Garðari fluttist hann til Reykjavíkur og vann sem togarasjómaður í fjöldamörg ár.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
Frekari umfjöllun
Ólafur Vilhjálmsson frá Múla, sjómaður, skipstjóri fæddist 12. september 1900 í Botnum í Meðallandi og lést 24. febrúar 1972 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Vilhjálmur Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður á Múla, f. 28. ágúst 1872 í Rofabæ í Meðallandi, d. 3. júlí 1951, og kona hans Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 27. september 1869 á Fossi í Mýrdal, d. 10. júlí 1929.
Ólafur var með móður sinni í Botnum til ársins 1901, fluttist með henni og föður sínum að Löndum á því ári, en þar voru þau vinnufólk 1902. Hann var með þeim á Oddsstöðum 1903, en síðan á Múla, en það hús byggðu þeir faðir hans og Jónas Jónsson 1904. Þar bjó hann uns hann fluttist til Reykjavíkur 1928.
Hann var á stýrimnnanámskeiði í Eyjum 1922.
Ólafur var sjómaður og skipstjóri í Eyjum. Hann var sá eini, sem komst lífs af úr sjóslysinu við Eiðið 16. desember 1924, er bát, sem var á leið út í e.s. Gullfoss að sækja slasaðan mann, hvolfdi skömmu eftir að lagt var frá landi. Þar fórust 8 menn. Ólafur var síðar sjómaður á togurum frá Reykjavík og sigldi stríðsárin á Bretland .
Hann lést 1972.
Kona hans, (14. mars 1931), var María Jónsdóttir húfreyja í Reykjavík, f. 15. nóvember 1907 á Læk í Ölfusi. d. 14. ágúst 1999. Foreldrar hennar voru Jón Símonarson bóndi og sjómaður á Læk, síðar verslunarmaður í Reykjavík, f. 14. júní 1862, d. 12. apríl 1943, og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1870, d. 22. júlí 1938.
Börn þeirra:
1. Svanhvít Erla Ólafsdóttir húsfeyja, f. 5. nóvember 1931.
2. Vilhjálmur Ólafsson viskiptafræðingur, f. 6. maí 1933.
3. Sigurður Jón Ólafsson bókavörður, f. 12. febrúar 1947.
Myndir
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.