Guðlaugur Halldórsson (skipstjóri)
Guðlaugur Halldórsson fæddist 20. maí 1898 og lést 4. apríl 1977. Hann bjó á Brekastíg 3, Sólbergi.
Guðlaugur var formaður á Leif VE 200 og á Hellisey.
Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Guðlaug:
- Með gætni og heppni um græðísmó
- Guðlaugur kannar sundin.
- Þá er lítið líf í sjó
- ef Leifur í höfn er bundinn.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Guðlaug:
- Laugi Halldórs lagarmund
- laginn haldað getur,
- þegar hann á hranna sund
- Helliseyna setur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.