Grímur Marinó Steindórsson
Grímur Marinó Steindórsson fæddist á Vestmannabraut 76 árið 1933 og ólst hann upp í Vestmannaeyjum.
Grímur er útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.
Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði hér í Eyjum.
Grímur Marinó hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann 1. verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbatsjovs og Reagan í Höfða árið 1986 og 2. verðlaun Listahátíðar 1987.
Grímur hefur búið í Kópavogi um árabil og hefur meðal annars verið útnefndur Bæjarlistamaður Kópavogs.