Grímur Marinó Steindórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Grímur Marinó

Grímur Marinó Steindórsson fæddist á Vestmannabraut 76 árið 1933 og ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann lést 5. júní 2019.

Grímur var útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.

Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði hér í Eyjum.

Grímur Marinó hlaut margar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann fyrstu verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbatsjovs og Reagan í Höfða árið 1986. Það listaverk stendur við Flugstöðina í Eyjum. Þá hlaut hann önnur verðlaun Listahátíðar 1987.

Grímur bjó í Kópavogi um árabil og var meðal annars útnefndur Bæjarlistamaður Kópavogs.

I. Kona Gríms Marinós var Rósa Jónsdóttir, f. 13. október 1942, d. 9. nóvember 2015.
Börn þeirra:
1. Gríma Sóley Grímsdóttir, f. 9. júní 1974. Maður hennar Viðar Guðmundsson.
2. Jón Þór Grímsson, f. 10. janúar 1965, d. 213. september 2018.