Ágúst Árnason (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:13 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:13 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst var barnakennari í Vestmannaeyjum 1907-1937. Hann fæddist 18. ágúst 1871 og lést 2. apríl 1957.

Hann flutti til Vestmannaeyja 1900 þá 29 ára gamall. Í upphafi tók hann að sér sjómennsku og húsasmíðar en árið 1907 varð mikil fjölgun barna í Vestmannaeyjum og því var þörf á kennurum við barnaskóla Vestmannaeyja. Þar vann hann sem kennari í 30 ár. Flest árin stundaði hann þó húsasmíðar meðfram kennslunni og hafði hann einnig smíðaverkstæði í kjallara íbúðarhúss síns, Baldurshaga (Vesturvegur 5a).

Ágúst var í raun fyrsti byggingarfulltrúi Vestmannaeyja. Hann mældi út flestar eða allar húslóðir fyrir jarðaumboð ríkisins í Eyjum og staðsetti íbúðarhúsin þar.

Ágúst var heitbundinn Ólöfu Ólafsdóttur og áttu þau fimm börn og tvö fósturbörn. Árið 1945 fluttust hjónin frá Eyjum og byggðu sér hús á Seltjarnarnesi.


Heimildir

Þorsteinn Þ. Víglundsson. Kennaratal frá 1904-1937. Blik. 24. árgangur 1963