Helga Helgadóttir (Steinmóðshúsi)
Helga Helgadóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi fæddist 12. apríl 1836 og lést 29. desember 1914.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806, d. 17. júní 1864 og fyrri kona hans Þuríður Björnsdóttir húsfreyja, f. 1813, d. 16. október 1837.
Helga var hálfsystir, (samfeðra), Jónasar Helgasonar bónda í Nýjabæ, Bjarna Helgasonar vinnumanns og Árna Helgasonar vesturfara.
Helga ólst upp hjá föður sínum og stjúpmóður í Kornhól. Hún var húsfreyja í Steinmóðshúsi 1860 og 1870, í Nýborg Nr. 2 1890, vinnukona í Nýjabæ 1901 og var þar 1910, hálfsystir húsbóndans Jónasar Helgasonar.
Hún ól sjö börn, en tvö voru lifandi 1910.
Maður Helgu (1855) var Jón Steinmóðsson, f. 17. nóvember 1834, d. 28. október 1896.
Börn þeirra hér:
1. Ingibjörg Jónsdóttir, f. 22. október 1856, d. 30. október 1856 úr ginklofa.
2. Sigríður Jónsdóttir, f. 4. febrúar 1858, d. 8. maí 1858, „dó snögglega, óvíst af hvaða veiki“.
3. Jón Jónsson, f. 14. febrúar 1859, d. 12. júní 1860 „af umgangsveiki“.
4. Jóhann Jónsson, f. 31. október 1862, fórst með þilskipinu Jósefínu 1888.
5. Ólafur Jónsson, f. 23. júní 1868, d. 6. apríl 1869 „úr uppdráttarsýki“.
6. Kristín Jónsdóttir, f. 29. febrúar 1873, d. 16. júlí 1942, gift Vigfúsi Ólafssyni úr Keflavík. Þau bjuggu á Seyðisfirði.
7. Friðrik Jónsson, f. 15. febrúar 1879, d. 18. nóvember 1958.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.