Eva Andersen (Sólbakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2014 kl. 15:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2014 kl. 15:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Eva Andersen.

Valgerður Ólafía Eva Andersen fæddist 9. nóvember 1908 og lést 17. september 1992.
Foreldrar hennar voru Hans Peter Andersen útgerðarmaður og skipstjóri á Sólbakka í Eyjum, ættaður frá Danmörku, f. 30. mars 1887 í Frederiksand, d. 6. apríl 1955 og kona hans Jóhanna Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1889, d. 23. nóvember 1934.

Eva var með foreldrum sínum á Löndum 1910 og á Sólbakka 1920.
Hún var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Gísli Finnsson kaupmaður, f. 19. júlí 1903, d. 2. maí 1983.
Þau skildu.
Börn Evu og Gísla voru:
1. Erla húsfreyja í Hergilsey, f. 26. október 1927, d. 7. júní 2005, kona Valtýs Snæbjörnssonar.
2. Sonja Hansína Gísladóttir, f. 4. júlí 1931, d. 7. september 1987.
3. Eygló Guðfinna Gísladóttir, f. 26. október 1933, d. 13. mars 2011.

II. Barnsfaðir Evu var Sigurður Pétur Norðfjörð Sigurðsson verslunarmaður, f. 20. október 1905, d. 24. júlí 1943.
Barn þeirra var
4. Kolbrún Sigurðardóttir Norðfjörð, f. 10. september 1940, d. 12. apríl 1954.
Hún var ættleidd 1947 af Valdimar Tómassyni, síðari manni Evu.

III. Síðari maður Evu var Valdimar Tómasson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 23. febrúar 1904, d. 15. ágúst 1992.
Börn Evu og Valdimars:
5. Jóhanna Andersen Valdimarsdóttir, f. 29. mars 1946.
6. Laufey Valdimarsdóttir, f. 22. júní 1947.
7. Valdimar Ómar Valdimarsson, f. 23. mars 1950.

Úr minningargrein:
„Amma var mikil listakona í sér hvað snerti alla handavinnu og saumaskap, og bera mörg heimilin í fjölskyldunni okkar vott um það.
Þær voru ófáar flíkurnar sem hún saumaði á okkur og í mörg, mörg ár bjó hún allar gjafir til sjálf, bæði jóla- og afmælisgjafir.
Hún var mikið snyrtimenni og í öll þau 27 ár sem ég hef lifað man ég ekki eftir heimili hennar öðruvísi en allt væri í röð og reglu og hreint út úr dyrum.
Eitt af áhugamálum hennar til margra ára var garðrækt, og naut garðurinn hennar á Bústaðaveginum góðs af því á meðan hún bjó þar.“ (Kolbrún Þórlindsdóttir. Mbl. 24. sept. 1992).

ctr


Eva og börn hennar af báðum hjónaböndum.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Morgunblaðið 24. september 1992. Minning. Kolbrún Þórlindsdóttir.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.