Dagstyggur Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2014 kl. 10:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2014 kl. 10:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Dagstyggur Guðmundsson í Hólshúsi fæddist 1678.
Hann var vinnumaður í Tómasarbær í Eyjum 1703 hjá Jóni Þorsteinssyni og Emerentsíönu Ásgeirsdóttur húsfreyju.
Á bændatali, sem gert var af Sigurði Stefánssyni sýslumanni 1735, var Dagstyggur „biggjande“ í „Hoolhuss“.

Börn Dagstyggs hér:
1. Una Dagstyggsdóttir, f. 1713, d. 2. janúar 1789.
2. Ögmundur Dagstyggsson bóndi í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður), f. 1724, líklega í Eyjum, d. 27. september 1805 í Syðstu-Voðmúlastaðahjáleigu í A-Landeyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Upp á Vestmannaeyja þingstaðar bæja-, innbyggjara- og bændanöfn. Sigurður Stefánsson sýslumaður 1735. Handrit í Þjóðskjalasafni.