Guðbjörg Guðmundsdóttir (Búastöðum)
Guðbjörgu Guðmundsdóttir á Búastöðum fæddist 1817 og lést 13. febrúar 1871.
Faðir hennar var Guðmundur bóndi á Valstrýtu í Fljótshlíð, f. 1792, Jensson bónda í Deild í Fljótshlíð, f. 1755 á Hlíðarenda, d. 27. janúar 1831, Jenssonar, og konu Jens Jenssonar í Deild, Guðbjargar húsfreyju, f. 1762 í Varmahlíð u. Eyjafjöllum, d. 17. nóvember 1842, Guðmundsdóttur.
Móðir Guðbjargar var Þuríður húsfreyja á Valstrýtu, f. 1797 á Steinsmýri í Meðallandi, Eyjólfsdóttir bónda á Syðri-Steinsmýri þar, en síðast í Sandaseli þar, f. 1768, d. 18. febrúar 1823, Jónssonar bónda á Syðri-Fljótum í Meðallandi, en síðar á Rangárvöllum og Hlíðarenda í Fljótshlíð, en síðast og lengst á Flókastöðum þar, f. 1743, d. 21. september 1807, Þorlákssonar, og fyrri konu Jóns á Flókastöðum, Guðrúnar húsfreyju, f. 1730, á lífi 1768, Jónsdóttur.
Móðir Þuríðar á Valstrýtu og fyrri kona Eyjólfs bónda var Halldóra húsfreyja, f. 1766, d. 22. febrúar 1821, Sigurðardóttir bónda á Árgilsstöðum í Fljótshlíð, f. 1727, d. 17. júlí 1796, Sigurðssonar, og konu Sigurðar, Þuríðar húsfreyju, f. 1741, d. 3. ágúst 1818, Bergsteinsdóttur.
Guðbjörg var á Valstrýtu með foreldrum sínum 1835, þar hjá móður sinni 1840.
Hún var vinnukona á Búastöðum 1845, þar hjá Páli Jenssyni og Gróu Grímsdóttur.
Hún fæddi Halldóru 1848. Halldór barnsfaðir hennar lést 1849 og 1950 var hún með Halldóru þriggja ára hjá sér á Búastöðum, en hún lést 1951. Guðbjörg var enn á Búastöðum 1855 og 1860, ógift.
Við manntal 1870 var hún skráð 53 ára matvinnungur í Stóra-Gerði.
Guðbjörg lést 1871.
Barn með Stefáni Halldórssyni í Stóra-Gerði, f. 1828, d. 18. apríl 1849.
Barnið var
1. Halldóra Stefánsdóttir, f. 16. ágúst 1848, d. 22. júlí 1851.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.