Guðrún Jónsdóttir (Norðurgarði)
Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1798, var á lífi 1860.
Faðir hennar var Jón bóndi á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnsson bónda á Brekkum, f. 1727, d. 15. september 1805, Brandssonar bónda í Vatnsdalskoti í Fljótshlíð, f. 1694, á lífi 1745, Halldórssonar, og konu Brands, Guðleifar húsfreyju, f. 1694, d. 7. mars 1763, Bergþórsdóttur.
Móðir Jóns á Brekkum og kona Þorbjörns Brandssonar var Guðrún húsfreyja, f. 1729, d. 11. júní 1803, Gunnarsdóttir bónda í Ey í V-Landeyjum, f. 1697, d. 27. október 1768, Helgasonar, og konu hans, Þorbjargar húsfreyju, f. 1709, d. 15. febrúar 1759, Snorradóttur.
Móðir Guðrúnar húsfreyju í Norðurgarði og kona Jóns Þorbjörnssonar var Vilborg húsfreyja, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttir bónda á Lágafelli í A-Landeyjum, f. 1736, á lífi 1768, Guðbrandssonar bónda á Minni-Moshvoli, f. 1690, Lafranssonar, og konu hans, Helgu húsfreyju, f. 1698, Sveinsdóttur.
Móðir Vilborgar Jónsdóttur og kona Jóns Guðbrandssonar var Ingibjörg húsfreyja, f. 1735, d. 13. júlí 1814, Pálsdóttir bónda á Grjótá í Fljótshlíð, f. 1698, Eyjólfssonar, og konu Páls á Grjótá, Vilborgar húsfreyju, f. 1698, Árnadóttur.
Guðrún var ekki hjá foreldrum sínum á Brekkum 1801, var ógift vinnukona í Norðurgarði við manntal 1816, en veðurteppt undir Eyjafjöllum.
Hún var húsfreyja í Norðurgarði 1835 og 1845, móðir húsfreyju í Norðurgarði 1850, tengdamóðir húsbóndans Brynjólfs Halldórssonar 1855 og 1860.
Maður Guðrúnar var Guðmundur Eyjólfsson bóndi í Norðurgarði f. 17. október 1790, d. 18. ágúst 1846.
Börn Guðrúnar og Guðmundar hér:
1. Vilborg Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, síðar í Dölum, f. 1823, á lífi 1870.
2. Jórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 4. desember 1828, d. 14. febrúar 1879.
3. Jón Guðmundsson, f. 1830. Var vinnumaður í Norðurgarði 1855 hjá Jórunni systur sinni.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.