Margrét Guðmundsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 12:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 12:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Margrét Guðmundsdóttir''' húsfreyja í Háagarði fæddist 1772 og lést 10. ágúst 1843.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðmundur Bárðarson (Miðhúsum)|Guð...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Háagarði fæddist 1772 og lést 10. ágúst 1843.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Bárðarson bóndi í Rimakoti í A-Landeyjum og síðar í Eyjum, f. 1745 d. 1. júlí 1813 og kona hans Þórdís Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1744, d. 1. janúar 1840.

Margrét var systir
1. Guðfinnu Guðmundsdóttur húsfreyju og ljósmóður í Stakkagerði, konu, (skildu), Bergs Brynjólfssonar.
2. Tómasar Guðmundssonar prests í Villingaholti í Flóa.

Margrét var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1801. Hún finnst ekki skráð með Þorvaldi og tveim lifandi börnum 1816. Hún varð ekkja 1819 og var vinnukona í Stakkagerði 1821 og 1835.
Margrét lést 1843.

Maður Margrétar var Þorvaldur Gíslason bóndi í Háagarði, f. 1756, d. 19. mars 1819.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Þorvaldsson, f. 17. febrúar 1798, d. 20. febrúar 1798.
2. Þórdís Þorvaldsdóttir, f. 30. ágúst 1799, d. 9. september 1799.
3. Elín Þorvaldsson, f. 30. janúar 1802, d. 31. janúar 1802.
4. Gísli Þorvaldsson, f. 24. júlí 1803, d. 2. ágúst 1803.
5. Vigfús Þorvaldsson, f. 28. desember 1805, d. 12. janúar 1806.
6. Guðrún Þorvaldsdóttir, f. 14. nóvember 1809, d. 18. október 1837.
7. Jórunn Þorvaldsdóttir, f. í maí 1813, d. fyrir mt 1816.
8. Þórdís Þorvaldsdóttir, f. 15. september 1814, d. 11. desember 1872.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.