Þórdís Þorvaldsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 19:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 19:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þórdís Þorvaldsdóttir''' vinnukona fæddist 15. september 1814 og lést 11. desember 1872.<br> Foreldrar hennar voru Þorvaldur Gíslason...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Þorvaldsdóttir vinnukona fæddist 15. september 1814 og lést 11. desember 1872.
Foreldrar hennar voru Þorvaldur Gíslason bóndi í Háagarði, f. 1756, d. 10. maí 1819 og kona hans Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1772, d. 10. ágúst 1843.

Þórdís var með foreldrum sínum í Háagarði (Vilborgarstöðum) 1816, „uppalningur“ í Þorlaugargerði 1821 og 1822.
Hún var ógift vinnukona í Stakkagerði 1835, í Kornhól 1840 hjá Jóhanni Bjarnasen skipstjóra og Sigríði Jónsdóttur, í Nýjabæjarhjalli 1845 hjá Sigmundi Jónatanssyni og Úlfheiði Jónsdóttur, en 1850 hjá þeim í Sæmundarhjalli, í París 1855, Kornhól 1860 hjá Helga Jónssyni ekkli og 57 ára niðursetningur á Vesturhúsum 1870 hjá Eiríki Eiríkssyni og Katrínu Eyjólfsdóttur.
Þórdís lést 1872.


Heimildir