Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 12:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 12:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Eyjólfur Þorbjörnsson''' bóndi og hreppstjóri á Búastöðum vestri fæddist 1797 í Ystaskála u. Eyjafjöllum og lést 10. janúar 1840.<br> Faðir hans var...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Þorbjörnsson bóndi og hreppstjóri á Búastöðum vestri fæddist 1797 í Ystaskála u. Eyjafjöllum og lést 10. janúar 1840.
Faðir hans var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Eyjólfs og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.

Eyjólfur var með foreldrum sínum í Ásólfsskála 1801, vinnumaður í Þorlaugargerði 1814, var þar 1822.
Hann var bóndi og hreppstjóri á Búastöðum.

Eyjólfur var bróðir Vigdísar Þorbjörnsdóttur húsfreyju í Svaðkoti og móðurbróðir Vilborgar Þórðardóttur í Elínarhúsi.

Kona Eyjólfs var Ragnhildur Ingimundardóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1799 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 11. mars 1888.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. ágúst 1826, d. 17. ágúst 1826.
2. Þorbjörg Eyjólfsdóttir, f. 31. október 1829, d. 6. maí 1915.
3. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 4. desember 1830, d. 11. desember 1830.
4. Andvana stúlka, f. 13. apríl 1834.
5. Þorbjörn Eyjólfsson, f. 21. maí 1835, d. 27. maí 1835.
6. Ólafur Eyjólfsson, f. 4. desember 1836, d. 15. desember 1836.


Heimildir