Anna Þorbjörnsdóttir (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. október 2013 kl. 22:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. október 2013 kl. 22:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Þorbjörnsdóttir í Dalahjalli, fæddist 1798 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og lést 11. mars 1849.
Faðir hennar var Þorbjörn Jónsson tómthúsmaður í Dalahjalli, f. 1765, d. 20. febrúar 1811.
Móðir Önnu var Kristín Þórólfsdóttir húsfreyja í Dalahjalli, f. 1765, d. 11. október 1830.

Anna var þriggja ára með foreldrum sínum í Bakkahjáleigu 1801. Móðir hennar var þar húskona og faðirinn vinnumaður.
Hún var fósturbarn í Presthúsum 1816; ekkja, vinnukona að Ofanleiti 1835, en var hjá Þórði syni sínum á Löndum 1845.

Maður Önnu var Einar Einarsson, d. 25. september 1833:
Börn þeirra hér:
1. Þorbjörn Einarsson, f. 9. október 1819.
2. Þorbjörg Einarsdóttir, f. 2. júlí 1821.
3. Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 4. október 1822, d. 1860.


Heimildir