Anna Þorbjörnsdóttir (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 18:00 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 18:00 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Anna Þorbjörnsdóttir''' í Dalahjalli, fæddist 1798 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og lést 11. mars 1849. <br> Faðir hennar var [[Þorbjörn Jónsson (Dalahjal...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Þorbjörnsdóttir í Dalahjalli, fæddist 1798 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og lést 11. mars 1849.
Faðir hennar var Þorbjörn Jónsson tómthúsmaður í Dalahjalli, f. 1765, d. 20. febrúar 1811.
Móðir Önnu var Kristín Þórólfsdóttir húsfreyja í Dalahjalli, f. 1765, d. 11. október 1830.

Anna var þriggja ára með foreldrum sínum í Bakkahjáleigu 1801. Móðir hennar var þar húskona og faðirinn vinnumaður.
Hún var fósturbarn í Presthúsum 1816; ekkja, vinnukona að Ofanleiti 1835, en var hjá Þórði syni sínum á Löndum 1845.

Maður Önnu var Einar, d. fyrir manntal 1835:
Barn þeirra hér:
Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1822, d. 1860.


Heimildir