Ritverk Árna Árnasonar/Tyrkja-Gudda
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Tyrkja-Gudda
Þetta magnaða ljóð er í handritasafni Árna, ritað með hans eigin hendi, en höfundar ekki getið. Það er ort í stíl Klettafjallaskáldsins Stephans G. Stephanssonar, með sama bragarhætti og kvæði Stephans, Jón hrak. Þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan hefur ekki upp á neinum hafst, sem kannast við að hafa séð þetta kvæði fyrr, og birtist það því líklega hér á prenti í fyrsta sinn. Árni Árnason er skráður höfundur þess. (Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012).
- Sá ég fyrr – í sagna skruddu
- sögurnar um Tyrkja-Guddu,
- mest var getið mæðu og hnjóðs.
- Hertekin og seld var Serkjum,
- saurguð, brennd af nautnum sterkum.
- Enginn hennar gat til góðs.
- Trúvillt þótti og ill í orði,
- enginn henni stóð á sporði,
- íslenk þjóð þess illa galt.
- Hún fór eldi ástríðnanna
- yfir sálir beztu manna,
- og soramarkið setti á allt.
- Útlend kona, ambátt, móðir,
- átti mök við heiðnar þjóðir,
- bersyndug af dólgum dæmd.
- Eftir munað mein oft þjaka,
- margir arf með Guddu taka, -
- sneyddir Farísea sæmd.
- Tungumjúk og tannhvöss var hún,
- töframögn því einhver bar hún,
- líkt og suðræn sólbrennd vín.
- Sturluð ást í fangafjötrum,
- fallin kona, í skarti og tötrum,
- naumast getur notið sín.
- Oft var geðstirð Gudda að meini,
- góðskáldið hjá Hallgríms steini
- orti upp kvæði, eldi svift.
- Ljóð þau urðu að lífsins auði,
- létu bæði synd og dauði
- undan Hallgríms andagift.
- Bregða hinu betra fáir,
- breyska Guddu enginn dáir,
- frónskra tryggða fyrirmynd.
- Sólu vermd frá Serkjalöndum
- sótti hún heim að feðraströndum,
- Eyjar, jökla, ástir – synd.
- Meðan ytra í ánauð var hún,
- ótal þunga harma bar hún,
- bóndinn heima að syndum sat.
- Líkn hann þá af klerkum, kirkjum.
- Konan þjáð af ránslýð – Tyrkjum.
- Um það sagan sjaldan gat.
- En, er Gudda í ánauð þreyði,
- eiginmaður hennar deyði,
- sekur guð og Guddu við.
- Stundum heimsins Stórudómar
- standast ekki sagnir frómar. –
- Heimslífið á sinn hundasið.
- Lærðum glæstum gáfumanni
- gekk á hendur veikur svanni,
- seidd af eldi - anda hans.
- Furðar þá, er síðan syngja
- sálma Davíðs, Íslendinga,
- hennar ást til höfðingjans.
- Stormur þroskar styrkar eikur, -
- stórmennið að hættum leikur,
- andann menntar eilíft stríð.
- Barátta við böl og syndir
- birtir skáldi helgar myndir,
- sál hans vaknar – vekur lýð.
- Þjóðargoð varð þegninn dýri.
- Þjóðsögur og ævintýri
- heiðra sjaldan hetju víf.
- Slekkur ljós, en eldinn æsir
- ærsla stormur. Ljóða ræsir
- þroskaðist við þrautalíf.
- Öndvegið í óðar heimi
- ávallt hygg ég skáld að geymi.
- Neikvæð öld sízt neitar því. –
- Helga gáfu, himni studda,
- holdsveikin og Tyrkja-Gudda
- hæsta veldi hófu í.