Sigfinnur Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:27 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:27 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfinnur Sigurðsson er fæddur 16. febrúar 1937 í Stykkishólmi. Foreldrar hans voru Sigurður Skúlason verslunarmaður í Stykkishólmi og Soffía Sigfinnsdóttir. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1957 og í framhaldi af því cand. phil. frá Háskóla Íslands árið 1958. Sigfinnur öðlaðist hagfræðipróf árið 1963 frá háskóla í Marburg Lahn og Köln. Prófritgerð Sigfinns var um utanríkisverslun Íslendinga árið 1963. Einnig skrifaði Sigfinnur um Skipulag sjávarkauptúna á Íslandi (sem var verðlaunaritgerð Skipulagsstjórnar ríksins 1972).

Sigfinnur starfaði við ýmis konar opinber störf, m.a. við uppbyggingu nýs fasteignamats ríkisins, var borgarhagfræðingur og var framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga frá 1972-75. Þá tók hann við embætti bæjarstjóra Vestmannaeyja og gegndi í tvö ár, á árunum 1975-1976.

Sigfinnur var hagfræðingur Verslunarmannafélags Reykjavíkur frá 1979.

Kona hans var Helga Sveinsdóttir frá Þykkvabæ og áttu þau þrjú börn.

Sigfinnur lést árið 2003.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.