María Friðrika Guðmundsdóttir
María Friðrika Guðmundsdóttir húsfreyja frá Batavíu fæddist 3. mars 1868 og lést Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ögmundsson vitavörður og járnsmiður, f. 13. maí 1842, d. 19. nóvember 1914, og fyrri kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1830, d. 1. júlí 1886.
María Friðrika var hjá foreldrum sínum í Brandshúsi 1870, unnusta og bústýra í Helgahjalli 1890.
María Friðrika, Jóhannes maður hennar og Ólafía tveggja ára dóttir þeirra eru meðal útflytjenda frá Helgahjalli 1892.
María Friðrika var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Jóhannes Jónsson Ögmundssonar tómthúsmaður í Helgahjalli, f. 14. maí 1866 í Presthúsum í Mýrdal, d. 1895 í Spanish Fork í Utah.
Börn Maríu Friðriku og Jóhannesar hér voru:
1. Guðjón, f. 14. mars 1888, d. 21. mars sama ár.
2. Ólafía, fædd 7. júlí 1890.
II. Síðari maður Maríu Friðriku var Björn Magnússon frá Ljótarstöðum í A-Landeyjum, bóndi í Blaine í Washington-fylki í Bandaríkjunum, f. 30. september 1857, d. 6. maí 1935,
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Árni Árnason.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.