Ágústnótt
- Undurfagra ævintýr,
- ágústnóttin hljóð,
- um þig syngur æskan hýr
- öll sín bestu ljóð.
- Ljósin kvikna brennur bál,
- bjarma slær á grund.
- Ennþá fagnar sérhver sál
- sælum endurfund.
- Glitrandi víf og vín
- veita mér stundar frið.
- Hlæjandi ljúfa líf,
- ljáðu mér ennþá bið.
- Undurfagra ævintýr,
- ágústnóttin hljóð,
- hjá þér ljómar ljúf og hýr
- lífsins töfraglóð.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Árni úr Eyjum
- Hlusta á lag af tonlist.is