Guðjón Kristinsson (Miðhúsum)
Guðjón Kristinsson fæddist 29. nóvember 1917 og lést 28. mars 1975. Hann bjó á Hvoli við Urðaveg 17 og síðar á Vesturvegi 31. Hann var oftast kenndur við heimili sitt Hvol, en einnig við æskuheimilið Miðhús-vestri.
Kona hans var Kristín Ólafsdóttir og áttu þau fjögur börn, þ.á.m. Matthías.
Guðjón var skipstjóri og útgerðarmaður, m.a. á Hrauney VE.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðjón:
- Kristinsson Guðjón gistir
- glæstum á bakka næsta.
- Jón Stefáns lætur lóna
- laginn um æstan sæinn.
- Stórhuga stýris-Þórinn
- stífur inn þorskinn drífur,
- frökk þó að Rán í rökkri
- rökk hýði fríðan nökkva.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.