Geysir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 11:38 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 11:38 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Geysir stendur við Skólaveg 21. Það var reist árið 1932. Húsið var stækkað til suðurs á stríðsárunum. Síðan þá er húsið áfast við Nýhöfn. Lengst af bjó í Geysi Guðlaugur Gíslason, fyrrum bæjarstjóri og alþingismaður og fjölskylda hans en Guðlaugur rak einnig verslunina Geysi á neðstu hæð hússins í mörg ár. Fleiri fyrirtæki hafa verið þar til húsa, eins og tryggingafélagið Sjóvá Almennar. Árið 2007 hárgreiðslustofan Ozio.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Skólavegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.