Blik 1969/Hrófin á fyrstu árum 20. aldar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. maí 2010 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. maí 2010 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1969




Þessi mynd mun tekin af Hrófunum á fyrsta tugi aldarinnar eða þar um bil. Sumarbátar Eyjamanna eru settir upp í Hrófin. Þar er einnig áttæringurinn Gideon (nær) og Farsæll (fjær).
– Húsin frá vinstri: 1. Timburgeymsluhús Edinborgarverzlunar.
2. Kumbaldi, salt- og þurrfiskhús Austurbúðarinnar eða Brydeverzlunarinnar. Þar voru leiknir sjónleikir á haustin fyrir og um aldamótin.
3. Austurbúðin, byggð 1880.
4. Nær eru geymslu- og beitningarskúrar eða krær. Vor- og sumarbátar settir í Hrófin.
Myndin mun tekin á árunum 1910-1920.




Húsið til hægri er Svartahúsið, þrætueplið mikla og alkunna, eign konsúlanna á Tanganum.
Til vinstri blasir Geirseyrin við sjónum okkar. Hana byggði h.f. Herjólfur 1912 og Sigurgeir Torfason kaupm. og útgerðarm. keypti 1915.