Blik 1974/Jólakveðja til unnustu

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. september 2009 kl. 17:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. september 2009 kl. 17:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Blik 1974/ Jólakveðja til unnustu''' Fyrstu árin, sem Þorsteinn Erlingsson, skáld, dvaldist í Kaupmannahöfn, var hann trúlofaður Jarþrúði Jónsdóttur háyfirdómara Pé...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Blik 1974/ Jólakveðja til unnustu


Fyrstu árin, sem Þorsteinn Erlingsson, skáld, dvaldist í Kaupmannahöfn, var hann trúlofaður Jarþrúði Jónsdóttur háyfirdómara Péturssonar. Um hver jól sendi hann elskunni sinni ástarvísu. Hér birtum við eina vel kveðna, eins og hans var von og vísa:

Á jólunum, elskaða unnusta mín,
ég englana mína læt fljúga til þín.
Á fegurstu óskir þá fýsir að benda,
sem fjarlægan ástvin þér langar að senda.