Séra Jón Jónsson
Jón Jónsson, 1628 til 1650. Foreldrar: Séra Jón Egilsson að Hreppshólum og kona hans Þórdís Bjarnardóttir. Hann varð fyrst prestur í Guttormshaga og sennilega síðar í Sólheimaþingum undir Eyjafjöllum og líklega einnig í Reynisþingum. Séra Jón var dæmdur frá embætti fyrir barneign árið 1650.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.