Blik 1950/Heimaey, kvæði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. janúar 2010 kl. 19:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. janúar 2010 kl. 19:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: Efnisyfirlit 1950 ::UNA JÓNSDÓTTIR :::<big>Heimaey</big> ::''Þú blessuð eyja, blómguð, þýð,<br> ::''þig blessi Drottinn alla tíð.<br>...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1950



UNA JÓNSDÓTTIR
Heimaey
Þú blessuð eyja, blómguð, þýð,
þig blessi Drottinn alla tíð.
Þú verður alltaf vinamörg
og veitir stóra björg.
Ég fæddist upp við fellið þitt;
þú fyrirleizt ei nafnið mitt;
allir sem að una hér,
þeir unna líka þér.
Og ég hef tínt þín blessuð blóm,
er bæta mönnum heilsutjón,
svo oft til bata öðrum hér
og einnig líka mér.