Jón Sigurðsson (Ártúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. janúar 2010 kl. 23:13 eftir Snorrima (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. janúar 2010 kl. 23:13 eftir Snorrima (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Sigurðsson


Jón

Jón Sigurðsson fæddist 12. febrúar 1900 og lést 24. janúar 1980. Hann var kvæntur Karólínu Sigurðardóttur. Þau bjuggu fyrst í húsinu Ártún við Vesturveg en byggðu síðar húsið við Vestmannabraut 73 og bjuggu þar til æviloka.

Jón var sonur Sigurðar Jónssonar (Johnson) frá Syðstu Mörk undir Eyjafjöllum. Foreldrar Jóns, Sigurður og Margrét Gísladóttir fluttust búferlum, árið 1901 til Vesturheims og námu þar land í Mouse River byggð í Norður Dakóta. Tóku þau þar upp ættarnafnið Johnson, að vestrænum sið. Sigurður ritaði æviminningar sínar sem komu út árið 1950 undir heitinu „Minningar Sigurðar frá Syðstu Mörk“.

Jón og Karolína eignuðust fjögur börn, 1) Geirlaugu, f. 20. júní 1923 - d. 31. maí 1995, 2) Kristínu, f. 12. janúar 1926 - d. 9. ágúst 2004, 3) Margréti, f. 9. október 1931 og Sigurð (Didda pabba), f. 24. júlí 1940.

Diddi pabbi er sonur hans.