Blik 1980/„Hvanneyrarstrákarnir“
Mig langar til að biðja Blik mitt að geyma fyrir mig þessa mynd af okkur Hvanneyrarstrákunum, sem stunduðu nám í fyrsta bekk bændaskólans veturinn 1917 - 1918.
Bændaskólinn á Hvanneyri minntist 90 ára starfs síns hinn 24. júní á s. l. ári. Þá gat ég um leið minnzt þess, að 60 ár voru liðin, síðan ég lauk þar búfræðiprófi.
Aftasta röð frá vinstri:
- Ólafur Gíslason frá Miðhvammi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Kraunastöðum í s.s. Dáinn.
- Þorsteinn Davíðsson frá Fjósatungu í Fnjóskadal. Hann var verksmiðjustjóri Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar á Akureyri um árabil og skógarvörður Vaglaskógar.
- Arngrímur Kristjánsson frá Sigríðarstöðum í S.-Þingeyjarsýslu. Hann var kunnur skólastjóri í Reykjavík um árabil. Dáinn.
- Stefán Ólafsson frá Kalmanstungu í Borgarfirði. Síðar bóndi þar. Dáinn.
- Kristófer Ólafsson frá Kalmannstungu, bróðir Stefáns. Síðar bóndi þar. Dvelst nú í Rvk.
- Sigfús Elíasson frá Uppsölum í Barðastrandarsýslu. Síðar rakarameistari og rithöfundur. Dáinn.
- Björn Ólafsson frá Spákonufelli í A. -Húnavatnssýslu. Dáinn.
- Gunnar Sveinsson frá Hamri í Dalasýslu. Dáinn.
- Þorlákur Björnsson frá Björk í Árnessýslu. Hann hefur dvalizt mörg ár í Kanada. Dvelst þar nú á elliheimili.
Miðröð frá vinstri:
- Þrándur Indriðason frá Ytra-Fjalli í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Aðalbóli í s.s. Dáinn.
- Magnús Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Var bóndi á Ósi í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn.
- Jón Friðriksson frá Kraunastöðum í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Hömrum í s.s.
- Þ.Þ. V.
- Sigmundur Halldórsson frá Gröf á Snæfellsnesi. Síðar húsasmíðameistari í Reykjavík. Dáinn.
Fremsta röð frá vinstri:
- Jón Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Síðar verkamaður í Reykjavík. Dáinn.
- Þorlákur Guðmundsson frá Gufudal í Barðastrandarsýslu. Síðar skipstjóri í Ameríku.
- Þórður Hafliðason frá Bakka í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn.
- Ísak Jónsson frá Gilsárteigi í S.-Múlasýslu. Síðar kunnur skólastjóri í Reykjavík. Dáinn.
- Áskell Sigurjónsson frá Sandi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Litlu-Laugum í s.s.
- Jóhannes Guðjónsson frá Arnarstöðum á Snæfellsnesi. Síðar bóndi á Saurum í s.s. Dáinn.