Blik 1939, 6. tbl./Söngur Sigrúnar
Úr söngleiknum: „Í brekkunni við fossinn.“
Loftur Guðmundsson, kennari:
- Söngur Sigrúnar.
- Ég vil ekki hindra þig, vinur kær,
- þó viti ég að leiðir skilja.
- þó viti ég að leiðir skilja.
- Mín ást skal þér fylgja, sem blíður blær.
- Í bæn og í draum verð ég stöðugt þér nær,
- en harmtár mín reyni að hylja.
- en harmtár mín reyni að hylja.
- Ég vil ekki hindra þig, vinur kær,
- Ég vaki og bíð þín, vinur kær
- unz vegur þinn liggur til baka.
- unz vegur þinn liggur til baka.
- Í brekkunni þar sem blómið grær
- og blikandi silfurstreng fossbúinn slær
- í vornæturkyrrð skal ég vaka.
- í vornæturkyrrð skal ég vaka.
- Ég vaki og bíð þín, vinur kær
- Og komir þú sigrandi og heill í hlað
- skal hátíð í sálu minni.
- skal hátíð í sálu minni.
- Hvert titrandi andvarp ... hver bæn, sem ég bað
- verður blóm, sem ég geymi við hjartastað.
- Og gleðst yfir gæfu þinni.
- Og gleðst yfir gæfu þinni.
- Og komir þú sigrandi og heill í hlað
- — — —
- En beri þig heim með brostnar þrár,
- og bugi þig sorg og þreyta.
- og bugi þig sorg og þreyta.
- Með kossum ég græði þín sollnu sár
- og syng þér af augum hvert raunatár.
- Mín ást skal þér aftur veita
- það allt, sem þú hugðist að leita.
- það allt, sem þú hugðist að leita.
- Mín ást skal þér aftur veita
- En beri þig heim með brostnar þrár,