Stefán Finnbogason (Framtíð)
Stefán Finnbogason, Framtíð, fæddist að Uppsölum í Vestmannaeyjum þann 1. júlí 1890 og lést 2. júní 1968. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Hann var í miðið á fimm sonum þeirra. Bræður hans voru Björn Þórarinn, Ágúst Kristján, Finnbogi og Árni Sigurjón. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.
Kona Stefáns var Rósa Árnadóttir.
Þegar Stefán var ungur fluttist fjölskyldan að Norðurgarði þar sem Stefán ólst upp. Hann byrjaði ungur sjómennsku með Gísla Eyjólfssyni á Búastöðum. Stefán byrjaði formennsku árið 1920 á Magnúsi og lýkur formennsku eftir fimm ár.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.