Guðni Grímsson (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 11:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 11:32 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Grímsson frá Haukabergi er fæddur 13. nóvember 1934. Foreldrar hans voru Grímur Gíslason og Guðbjörg Magnúsdóttir.

Guðni kvæntist Esther Valdimarsdóttur á jóladag 1956. Börn þeirra eru Valdimar f. 1957, Grímur f.1960, Guðni Ingvar f.1963 og Bergur f.1964.

Fjölskyldan bjó í húsinu Einbúa við Bakkastíg fyrir gos en húsið fór undir hraun. Guðni og Esther búa nú á Áshamri.

Nám og störf

Guðni gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og að honum loknum fór hann í Kvöldskóla iðnaðarmanna og tók minna mótorvélstjórapróf 1954 og 1. stig Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum 1960.

Fyrst fór hann til sjós á mb. Sjöfn VE-37 á síldveiðar fyrir Norðurlandi. Formaður var Þorsteinn Gíslason frá Görðum. Guðni var vélstjóri hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja á mb. Tý VE-315 eftir að hann tók vélstjóraprófið til 1957. Þá var hann hjá Helga Benediktssyni í eitt ár á mb. Fjalari og stýrimaður á Farsæli í eitt ár. Hann var skipstjóri eina vertíð eftir skipstjórnarprófið. Frá 1960 var hann vélstjóri hjá Rafveitu Vestmannaeyja (síðar Bæjarveitum Vestmannaeyja).

Guðni hefur starfað í Kiwanis-hreyfingunni frá árinu 1971. Var hann forseti Kiwanisklúbbsins Helgafells 1982-83 og svæðisstjóri Suðurlands 1988-89.



Heimildir

  • Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Vélstjóra- og vélfræðingatal II. Reykjavík: Þjóðsaga ehf, 1996.