Happastaðir
Húsið Happastaðir við Hvítingaveg 12 var byggt árið 1924.
Á Happastöðum bjuggu árið 2005 Gæsi og Lauga, Jón Valgarð Guðjónsson og Guðlaug Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars Sigurðssonar málara og Sigurbjargar Sóleyjar Böðvarsdóttur en þau byggðu húsið ásamt fósturföður Sigurbjargar. Jón Valgarð lést árið 2005.