Karl Ólafsson (Heiðarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 16:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 16:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Leiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Karl Ólafsson fæddist 30. janúar 1915 og lést 13. júlí 1990. Foreldrar hans voru Ólafur Ingileifsson og Guðfinna Jónsdóttir. Bróðir Karls var Sigurgeir. Karl bjó á Hásteinsvegi 7 en í Reykjavík seinni árin.

Karl var formaður með mótorbátinn Mýrdæling.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:

Kannar gniðar kaldan völl
Kalli borinn Óla,
þó að svæsin sævar föll
siglum vilji róla.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Karl hræðist víði varla,
ver Ólafs þann ég geri.
Gísla Johnsen á sýslar,
særinn, þó slíti færi.
Happsamur knarrar kappi
kann sig á leiðum hranna.
Tafl kann sá Týrinn afla,
talfár er greindur halur.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.