Arnoddur Gunnlaugsson
Arnoddur Gunnlaugsson fæddist 25. júní 1917 og lést 19. október 1995. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Arnodds voru Gunnlaugur Gunnlaugsson (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn Gunnlaugsson, Jón Gunnlaugsson, Aðalsteinn, Elías og Ingvar Gunnlaugsson. Systur Arnodds voru: Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir, Guðbjörg Þórsteina Gunnlaugsdóttir og Guðný Gunnlaugsdóttir. Þau systkini voru gjarnan kennd við Vestri-Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Arnoddur bjó á Gjábakka við Bakkastíg 9 og síðar á Sólhlíð 7.
Arnoddur var formaður á mótorbátnum Suðurey.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Arnodd:
- Gunnlaugs Addi garpur fær
- gerir togið draga,
- Suðurey þá sinni rær
- sjafnar víða haga.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Arnodd ég orða þarna,
- annar sá hafið kannar
- stinnur á Suðurey sinni,
- sanni með fiskinn spannar.
- Kann sín við kvikur hranna
- kaskur og sjó við naskur.
- Stóran greini skipstjóra
- sterkan og verinn merkan.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.