Gunnlaugur Ólafsson
Gunnlaugur Ólafsson fæddist í Þykkvabæ 6. ágúst 1946. Hann lést 16. apríl 2005. Foreldrar hans eru Ólafur Markús Guðjónsson sem er látinn og Svava Guðmundsdóttir. Árið 1969 kvæntist Gunnlaugur Kristínu Elínu Gísladóttur. Dætur Gunnlaugs og Kristínar eru: Guðrún Svava, Ellý Rannveig og Ólöf Elín. Fyrir átti Gunnlaugur Huldu Björk.
Gunnlaugur, sem Eyjamenn þekktu betur sem Gulla á Gandí, ólst upp á Ísafirði og byrjaði þar til sjós 14 ára gamall. Árið 1966 fluttist hann til Vestmannaeyja og hóf þar nám við Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum. Gunnlaugur vann hjá ýmsum útgerðum þar til árið 1977 er hann stofnaði sína eigin útgerð ásamt eiginkonu sinni. Gulli sat í varastjórn Vinnslustöðvarinnar frá 2000, í aðalstjórn frá 2003 og var varaformaður hennar allt til dauðadags.