Bjarnhéðinn Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 16:02 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 16:02 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bjarnhéðinn

Bjarnhéðinn Elíasson fæddist 27. ágúst 1921 og lést 8. október 1992. Hann var kvæntur Ingibjörgu Johnsen og bjuggu þau í húsinu Ásnes við Skólaveg.

Bjarnhéðinn hóf formennsku á Hugrúnu VE en var síðan í nokkur ár með Ísleif III sem Ársæll Sveinsson frá Fögrubrekku gerði út. Fór síðan í eigin útgerð og gerði út Elías Steinsson VE allt fram til ársins 1976.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Bjarnhéðin er hann var með Hugrúnu:

Bjarnhéðinn sjó við séðan,
sækinn Elías frækinn,
finn ég í fyrsta sinni
formanna leiðir kanna.
Hugrúnu hetjan dugar,
hafið þó stormur skafi.
Fengsæll á þorsk er þengill,
þundurinn blótar stundum.

Allmörgum árum síðar samdi Ási í Bæ formannavísur um nokkra skipstjóra í Eyjum og var Bjarnhéðinn einn þeirra. Vísan um hann er á þessa leið en þess skal getið að Bjarnhéðinn var kunnur fyrir að tvinna saman blótsyrðum og sögðu kunnugir að einhvern tíma hefði talstöðin sprungið undan slíkum ræðuhöldum.

Bjarnhéðinn hefur þann burðarskrokk
sem bilar ekki við fyrsta sjokk.
Svo á hann til að tvinna svo fast
að talstöðin í sundur brast.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.