Saltaberg (hús)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 08:44 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 08:44 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Varðan við Saltaberg, áður en Saltaberg var byggt

Húsið Saltaberg stendur við Illugagötu 61. Það var áður skráð við Höfðaveg 19. Jón Hlöðver Johnsen (Súlli) frá Suðurgarði, byggði húsið árið 1950, eftir teikningu frá Rögnvaldi Johnsen arkitekt og þótti útlit þess mjög sérstakt á þeim tíma og þykir raunar enn. Súlli bjó lengst af á Saltabergi, ásamt konu sinni Sigríði Haraldsdóttur (Bíu) frá Garðshorni en nú býr þar sonur þeirra, Haraldur Geir Hlöðversson, ásamt konu sinni, Hjördísi Kristinsdóttur.