Jóhann Gunnar Ólafsson
Jóhann Gunnar Ólafsson fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal. Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri og Sigríður Eyþórsdóttir. Kona Jóhanns hét Ragna Haraldsdóttir og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tók við embætti bæjarstjóra hér.
Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. Eftir tveggja ára starf við Útvegsbankann í Vestmannaeyjum fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár.
Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.
Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á Þjóðhátíð árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m.
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.