Háigarður
![](/images/thumb/9/97/H%C3%A1igar%C3%B0ur.jpg/250px-H%C3%A1igar%C3%B0ur.jpg)
Húsið Háigarður stóð við Austurveg og var talið til Vilborgarstaða fyrr á tímum. Hús þetta fór undir hraun í eldgosinu á Heimaey 1973.
Háigarður um 1942. Hlaðan til hægri. Hlaðbær er fyrir austan Hágarð, síðan Skáli (Litli Hlaðbær), Austari Vilborgarstaðir („Gústubær“), hús Lofts Jónssonar og Ágústínu Þórðardóttur austast. Elliðaey í baksýn. Myndin er tekinn af Svanhól (Oddnýjarhóli).