Ástgeir Guðmundsson
![](/images/thumb/b/bc/KG-mannamyndir_16767.jpg/250px-KG-mannamyndir_16767.jpg)
Ástgeir Guðmundsson, Litlabæ, fæddist 27. október 1858 og lést 30. september 1943. Synir Ástgeirs hétu Valdimar, Kristinn, Ólafur og Magnús.
Ástgeir flutti alfarið til Vestmannaeyja 1880. Ástgeir var formaður á Sæborgu sem hann smíðaði sjálfur. Var hann með hana í tvær vertíðir en hætti þá formennsku. Sonur Ástgeirs, Magnús, var við formennsku á Sæborgu á eftir föður sínum. Eftir að Ástgeir hætti formennsku hóf hann bátasmíði. Mun hann hafa smíðað 10 mótorbáta í Eyjum og marga á Stokkseyri.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.