Fiska- og náttúrugripasafnið
Fiska- og náttúrugripasafnið var stofnað árið 1964 og er því elsta safn sinnar tegundar á landinu. Friðrik Jesson var fenginn til þess að sjá um safnið. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik sá um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu.
Árið 2010 var nafni safnsins breytt í Sæheima. Núverandi forstöðumaður safnsins er Margrét Lilja Magnúsdóttir og er safnið opið alla daga frá klukkan 11-17 á sumrin en frá klukkan 13-16 á laugardögum á veturna.
Fuglasafn
Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. Hluti þess er fenginn frá Náttúrugripasafni Eyjabúa, sem var deild í Byggðasafninu.
Fiskasafn
Í þessum sal eru 12 ker sem geyma allar helstu tegundir nytjafiska sem veiðast hér við land, auk krabba, krossfiska, sæfífla og skeldýra. Í kerjunum er 6°C heitur sjór, sem dælt er úr borholu skammt frá safninu og er sá sjór því tandurhreinn.
Steinasafn
Þar er hægt að finna alls konar tegundir skrautsteina sem fundist hafa hér á landi. Flestir þessir steinar eru gjöf hjónanna Unnar Pálsdóttur og Sveins Guðmundssonar, Arnarstapa í Vestmannaeyjum, til Vestmannaeyjabæjar og var Náttúrugripasafninu falin varsla þeirra.
Nafnbreyting: Sæheimar
Vestmannaeyjabær sá um rekstur safnsins allt þar til að Þekkingarsetur Vestmannaeyja tók við rekstrinum í janúar 2010. Á þeim tímamótum var nafni safnsins breytt í "Sæheimar".
Safnstjórar
Tenglar
Heimildir
- Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja [Bæklingur]. Vestmannaeyjar.