Jónas Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. ágúst 2006 kl. 14:09 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. ágúst 2006 kl. 14:09 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Sigurðsson, Skuld, fæddist að Helluvatni á Rangárvöllum 29. mars 1907. Jónas fluttist ársgamall með foreldrum sínum, Sigurði Oddssyni og Ingunni Jónasdóttur, til Vestmannaeyja þar sem hann ólst upp. Ungur hóf Jónas sjómennsku á Baldri og síðar á Minervu. Árið 1927 byrjaði Jónas formennsku á Skógafossi og var með hann í 9 vertíðir. Eftir það var hann með fleiri báta, meðal annars Skíðblaðni og Gulltopp. Eftir að Jónas lét af sjómennsku gerðist hann húsvörður við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.