Elías Gunnlaugsson
Elías Gunnlaugsson fæddist 22. febrúar 1922. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson. Bræður Elíasar voru Arnoddur og Arnar. Elías bjó á Boðaslóð 17 en býr nú á Brimhólabraut 5.
Elías var formaður.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Elías:
- Gunnlaugs er grérinn kunni
- gramurinn Elías framur,
- niðji þeirra sá þriðji,
- þekkan ég meina rekkinn.
- Skjaldmögur trúr er Tjaldar
- tíðum í storma hríðum.
- Fína formennsku sýna
- fleyjastjórarnir Eyja.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.