Þórey Sigurðardóttir (Seljalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2020 kl. 11:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2020 kl. 11:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þórey Sigurðardóttir (Seljalandi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Þórey Kristín Ólína Sigurðardóttir húsfreyja fæddist 1. desember 1909 á Lambeyri við Tálknafjörð og lést 16. maí 1968 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorsteinsson verkamaður, fyrrum verslunarþjónn hjá P. J. Thorsteinsson á Bíldudal, f. 8. september 1883 í Fossgerði í Eiðasókn á Héraði, d. 3. júní 1951, og kona hans Þuríður Ólafía Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1. nóvember 1885 á Reykhólum í A.-Barð., d. 8. ágúst 1919.

Þórey var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík 1910.
Þau Sigurður tóku kjörbarn, fluttust til Eyja og bjuggu á Seljalandi við Hásteinsveg 10 1949.
Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu í Höfðaborg 21.
Þórey lést 1968 í Reykjavík. Sigurður Hafsteinn flutti til Eyja og lést 1975.

I. Sambúðarmaður Þóreyjar var Sigurður Hafsteinn Hreinsson frá Stokkseyri, sjómaður, f. 26. júlí 1913, d. 24. febrúar 1975.
Barn þeirra (kjörbarn):
1. Hafsteinn Már Sigurðsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 18. maí 1940 í Reykjavík, d. 30. mars 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.