Helga Jónsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. ágúst 2019 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. ágúst 2019 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jónsdóttir frá Gjábakka fæddist þar 7. september 1885 og lést 28. apríl 1932 Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Jón Guðmundsson á Gjábakka, f. 31. júlí 1843, d. 29. maí 1918 í Vesturheimi, og bústýra hans Margrét Helgadóttir, þá bústýra hans, síðar Vestanhafs, f. 24. september 1861, d. 9. september 1945.

Helga fór til Utah með móður sinni 1888 og Jón faðir hennar fór Vestur 1903.
Helga var tvígift.
I. Joseph Wing. Þau áttu 2 börn.
II. Síðari maður hennar var William Kavachewich. Þau áttu 5 börn.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.