Jóel Eyjólfsson
Jóel Eyjólfsson, Sælundi, var fæddur 3. október 1878 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 28. desember 1945.. Foreldrar hans voru Eyjólfur Eiríksson og Jórunn Skúladóttir.
Jóel var formaður á Immanúel sem hann keypti ásamt fleirum. Eftir að hann lét af formennsku rak hann útgerð sína í fleiri ár.
Jóel var með bestu bjargfuglaveiðimönnum Vestmannaeyja og einnig góður sigmaður.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.