Eygló Björnsdóttir (Reykholti)
Eygló Björnsdóttir fæddist 19. október 1951 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka. Eygló er gift Friðriki Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn. Eygló ólst upp á Urðarveginum og Bakkastígnum en eftir það bjó hún með manni sínum og börnum á Strembugötu.
Eygló starfaði sem kennari í Barnaskóla Vestmannaeyja í fjölda mörg ár. Árið 2006 býr fjölskyldan á Akureyri þar sem Eygló starfar sem verkefnastjóri gagnasmiðju Háskólans á Akureyri og kennir einnig við kennaradeildina þar.