Magnús Magnússon (Felli)
Magnús Magnússon, Felli var fæddur 8. júlí 1870 á Rangárvöllum. Kona Magnúsar var Kristín Jónsdóttir. Þau eignuðust einn son, Magnús. Kristín bjó síðar í Hólshúsi.
Magnús kom til Vestmannaeyjum um aldamótin 1900 og var formaður þar með opið skip í nokkur ár en 1907 keypti hann Kristbjörgu og var formaður á henni allt til 1926. Magnús var talinn í fremstu röð formanna. Einnig var hann bjargveiðimaður mikill.
Magnús lést 25. september 1940.
Heimildir
Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.