Magnús Magnússon (Bjarmalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:59 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:59 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Magnússon, Bjarmalandi, fæddist 6. október 1882 í Rauðasandshreppi og lést þann 22. október árið 1961.. Magnús fór til Vestmannaeyja árið 1909 og varð fyrst vélamaður á Dagmar. Árið 1918 var Magnús formaður með Báru í eina vertíð. Eftir það er Magnús vélamaður á ýmsum bátum allt til ársins 1926 þegar hann ræðst í að byggja dráttarbraut. Þar byggði Magnús tvo 23 lesta báta auk þess sem hann gerði við báta til ársins 1942. Þá seldi Magnús fyrirtækið.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.