Dagmar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vélbáturinn Dagmar VE-106 var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1906. Smiður var Ástgeir Guðmundsson í Litla-Bæ. Báturinn var úr furu. Hann var 8,82 rúmlestir að stærð og hafði 8 hestafla Hoffman-vél, og gekk hér fyrst á vertíð 1907.

Guðmundur Guðmundsson Westmann var formaður með Dagmar frá 1908.


Heimildir

  • Jón Sigurðsson. Þegar slysið varð á mb. Dagmar. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1963.